![]() |
|---|
Dicentra spectabilis
viðurkennt heiti: Lamprocapnos spectabilis
Hjartablóm
Draumsóleyjaætt
Papaveraceae
Hæð
hávaxið, um 70 - 80 cm
Blómlitur
bleikur og hvítur
Blómgun
júní - júlí
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
frjór, lífefnaríkur, vel framræstur, frekar rakur
pH
hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgert
Heimkynni
Síbería, N-Kína, Kórea og Japan
Hjartablóm, Dicentra, er lítil ættkvísl í draumsóleyjaætt, Papaveraceae, (áður reykjurtaætt) með um 8 tegundum sem vaxa í N-Ameríku og A-Asíu. Þau hafa margskipt, þunn laufblöð og óreglugega löguð blóm sem minna oft á hjarta. Þau vaxa í sól eða hálfskugga í næringarríkri mold. Hjartablóm, Dicentra spectabilis, hefur nýlega verið flutt í sér ættkvísl, Lamprocapnos, en verður áfram haft hér undir sínu gamla heiti. Það er eina tegund nýju ættkvíslarinnar.
Fjölgun:
Skipting að vori
Sáning - þarf kaldörvun, best sáð að hausti.
Fræ rétt hulið og haft í 2-4 vikur við stofuhita og svo er best að setja sáninguna út fram að spírun. Spírun getur verið hæg, fr æ gæti spírað ári síðar og því mikilvægt að henda ekki sáningunni of snemma. Spírar best við 5-12°C.
Hávaxin planta sem þarf stuðning. Var nýlega skipað í nýja ættkvísl, Lamprocapnos.

