top of page

Salvia

Lyfjablóm, salvíur

Lyfjablóm, Salvia, er stærsta ættkvísl varablómaættar, Lamiaceae, með um 1000 tegundum sem vaxa í Evrasíu og Ameríku. Tegundir ættkvíslarinnar skiptast á þrjú útbreiðslusvæði, Mið- og S-Ameríku, Mið-Asíu og Miðjarðarhafssvæðið og austanverða Asíu. Flestar tegundir eru of hitakærar fyrir íslenskt veðurfar en þó eru a.m.k. tvær tegundir sem eru harðgerðar hér.

Salvia hians

Kasmírsalvía

Kasmírsalvía er meðalhá fjölær planta með ljósgrænu laufi og fjólubláum blómum.

bottom of page