top of page

Penstemon whippleanus

Kampagríma

Græðisúruætt

Plantaginaceae

Hæð

meðalhá, 30 - 40 cm

Blómlitur

dökkpurpurarauður

Blómgun

júlí - ágúst

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þrífst vel, ef skilyrði eru rétt

Heimkynni

Klettafjöll

Grímur, Penstemon, er ættkvísl sem áður tilheyrði grímublómaætt (Scrophulareaceae) en hefur nú verið flutt í græðisúruætt, Plantaginaceae.  Þetta er stór ættkvísl með heimkynni í N-Ameríku. Þetta eru yfirleitt lágvaxnar jurtir eða hálfrunnar með óreglulega löguðum blómum með langri pípukrónu. Þær eru almennt sólelskar og henta margar vel í steinhæðir.​

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð síðvetrar.

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita fram að spírun. Ef fræ spírar ekki eftir 3-4 vikur, er best að kæla það í 2-4 vikur og hafa það svo áfram við stofuhita fram að spírun.


eða


Fræi sáð að hausti og hafti úti fram á vor og síðan tekið inn í stofuhita fram að spírun.

Þarf vel framræstan jarðveg og sólríkan stað.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page