top of page

Primula kewensis

Maríulykilsætt

Primulaceae

Hæð

lágvaxinn, um 10 cm

Blómlitur

gulur

Blómgun

ágúst - september

Lauflitur

grágrænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, vel framræstur, frekar rakur

pH

súrt - hlutlaust

Harðgerði

viðkvæmur

Heimkynni

garðablendingur

Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð að hausti eða síðvetrar.

Fræ ekki hulið og haft úti fram að spírun.

Blendingur P. verticilliata og P. floribunda sem kom fram í Kew Gardens snemma á 20. öld. Viðkvæmur, lifir varla óvarinn úti.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page