top of page

Veronica fruticans

Steindepla

Græðisúruætt

Plantaginaceae

Hæð

lágvaxin, um 5 - 10 cm

Blómlitur

blár

Blómgun

júní - júlí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, grýttur

pH

súrt - hlutlaust

Harðgerði

harðgerð

Heimkynni

Evrópa, Ísland

Bládeplur, Veronica, er stærsta ættkvísl græðisúruættar, Plantaginaceae, með um 500 tegundir. Ættkvíslin tilheyrði áður grímublómaætt en mikil endurskoðun hefur átt sér stað á þeirri ætt og margar ættkvíslir sem tilheyrðu ættinni nú flokkaðar í græðisúruætt. Bládepluættkvíslin er einnig í endurskoðun og mögulegt að allmargar ættkvíslir verði sameinaðar henni, t.d. ættkvíslin Hebe sem er nær eingöngu bundin við Nýja-Sjáland. Flestar tegundir bládepla skv. eldri flokkun eiga heimkynni um nyrðra tempraðað beltið. Þær þrífast best í sól, en gera ekki sérstakar jarðvegskröfur, þó lágvaxnar tegundir þrífist best í sendnum, þurrum jarðvegi.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð í febrúar - mars.

Fræ ekki hulið (þarf birtu til að spíra) og haft við stofuhita fram að spírun. Ef fræ hefur ekki spírað eftir 3-4 vikur, þá getur verið gagnlegt að kæla fræið í 4-6 vikur og færa það svo aftur í stofuhita fram að spírun.

Lágvaxin steinhæðaplanta sem þarf sólríkan stað og vel framræstan jarðveg. Íslensk planta, algeng víða um land.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page