top of page

Aquilegia saximontana

Klappavatnsberi

Sóleyjaætt

Ranunculaceae

Hæð

lágvaxinn, um 5-10 cm

Blómlitur

tvílitur, blár og hvítur

Blómgun

júní-júlí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, malarblandaður

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

Klettafjöll

Ættkvíslin Aquilegia, vatnsberar, tilheyrir sóleyjaætt, Ranunculaceae. Þeir eru einnig nefndir sporasóleyjar og er það nafn dregið af hunangssporum sem krónublöðin mynda. Þetta eru harðgerðar plöntur sem kunna best við sig í heldur rökum jarðvegi og skugga part úr degi. Þó eru til fjallaplöntur í þessari ættkvísl sem kjósa að vera sólarmegin í lífinu og vaxa best í vel framræstum jarðvegi.

Fjölgun:


Sáning – fræ spírar hægt og við lágt hitastig, best sáð að hausti eða síðvetrar.

Fræ ekki hulið og geymt úti fram að spírun. Spírun getur verið hæg og fræ getur spírað ári síðar, svo það er mikilvægt að henda ekki sáningunni of snemma.

Mjög fíngerð fjallaplanta sem fer vel í steinhæð eða steinhleðslu. Þarf sól og vel framræstan jarðveg.
Harðgerður

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page