Aquilegia buergeriana 'Calimero'
Dúnvatnsberi
'Calimero' er afbrigði af dúnvatnsbera sem blómstrar tvílitum blómum, ljósgulum og dökk fjólubláum. Verður um 20 cm á hæð.
Fræ frá Jelitto.
Sáningartími: janúar-febrúar. Fræ rétt hulið, kælt í 4 vikur og síðan haft við stofuhita fram að spírun. Einnig virkar vel að hafa pottana í köldu gróðurhúsi og spírar þá fræið þegar hlýna fer að vori. Dreifplantað þegar fræplöntur hafa náð meðfærilegri stærð.
15 fræ í pakka