top of page
Dahlia 'Bitsy'

Dahlia 'Bitsy'

660kr Regular Price
495krSale Price
Tax Included

Skrautdalía (Decorative)

 

Skrautdalíur hafa frekar breiðar tungukrónurnar sem eru annaðhvort nokkuð flatar eða aðeins uppsveigðar.  

 

'Bitsy' verður um 30-60 cm á hæð. Blómin eru tvílit, ljósfjólublá og hvít.

 

1 stk í pakka

Out of Stock
  • Ræktunarleiðbeiningar

    Dalíur þurfa langa forræktun inni og hlýjan, skjólgóðan og sólríkan vaxtarstað úti.  

    Hnýðið er gróðursett í 3 l pott í byrjun mars og ræktað inni á björtum og svölum stað þar til frosthætta er liðin hjá. Gróðurlýsing er ekki nauðsynleg, en gagnleg til að vöxtur verði ekki of teygður. Dalíur þurfa sólríkan vaxtarstað til að ná að blómstra. Þær þurfa vel framræstan jarðveg, því þær vilja ekki standa í bleytu, en þó þurfa þær mikla vökvun og eru fljótar að hengja blöð þegar moldin er orðin of þurr. Gæta þarf þess að nota ekki of köfnunarefnisríkan áburð, því þá verður blómgun minni og blómstönglar teigðir og veikir.

    Hnýðin þola ekki frost, en séu þau tekin inn og geymd yfir veturinn er hægt að planta þeim aftur að vori. Ef þau voru ræktuð í potti yfir sumarið er hægt að láta hnýðið þorna í pottinum, geyma pottinn á svölum stað og byrja svo að vökva aftur í mars. Þegar nývöxtur birtist þarf að koma pottinum fyrir á björtum, svölum stað.  Það er þó mælt með því að hreinsa moldina vel af hnýðunum og láta þau þorna í nokkra daga og geyma þau svo vafin í dagblöð eða í sandi/vikri yfir vetrarmánuðina. Þau eru svo gróðursett aftur að vori og ræktuð á sama hátt og árið á undan.

Tengdar vörur

bottom of page