Matthiola 'Vintage Mixed'
Ilmskúfur
Lágvaxið afbrigði af ilmskúf í blönduðum hvítum, bleikum, purpuralitum og fjólubláum litum. Hæð 35-40 cm.
Fræ frá Moles Seeds.
Sáð eftir miðjan febrúar. Fræ rétt hulið og haft við stofuhita fram að spírun. Spírun eftir 1-2 vikur við 18°C. Blómstrar um 90 dögum frá sáningu.
20 fræ í pakka.